Myndagrunnur er hugbúnaður til að halda utan um myndir í gagnagrunni.
Einfalt en mjög öflugt viðmót með mörgum möguleikum.
Myndir eru geymdar í fullum gæðum og stærð ofan í gagnagrunni. Þegar mynd er snúið þá haldast öll gæði og líka "Metadata" (inniheldur mikilvægar upplýsingar um myndina sem kemur frá myndavélinni, eins og tegund myndavélar, týpu, ljósop, dagsetning o.s.frv.).
Það má skipta kerfinu í 3 hluta.
1. Möppur. Skipulagt vinnusvæði þar sem myndasöfnin eru geymd í.
2. Myndasöfn. Hérna eru myndasöfn búin til og settar í réttar möppur. Hægt að aðgangstýra hverjir geta skoðað og breytt. Til að bæta við myndum er einfaldast að draga myndir inn á formið. Einni er hægt að taka úr Outlook póstforritinu. Hægt er að raða myndum, setja texta og leitarorð. Einnig er hægt að snúa myndum, vista þær sem skrár, senda í tölvupósti og margt fleira.
3. Leit. Mjög öflug leit er í kerfinu. Hægt að leita að möppum og myndum. Hægt er að leita eftir mörgum leitarorðum og birta leitarniðurstöðu bæði sem texta og sem mynd.
Myndagrunnur keyrir á SQL Server (SQL Express) og er þróaður í Delphi 2009.
Hægt er að aðlaga kerfið að Oracle og fleiri grunnum, Sharepoint og aðra vefi, auk þess er hægt að útfæra samskipti við fleiri póstforrit.
Ef þig vantar nánari upplýsingar hafðu þá samband info@myndagrunnur.is